Deprecated: File class-phpmailer.php is deprecated since version 5.5.0! Use wp-includes/PHPMailer/PHPMailer.php instead. The PHPMailer class has been moved to wp-includes/PHPMailer subdirectory and now uses the PHPMailer\PHPMailer namespace. in /var/www/virtual/leikuradlaera.is/ferd/htdocs/wp-includes/functions.php on line 5574
Einu sinni var - Endurmenntunarferðir

Sögur sagðar með skynfærum

Í okkur öllum býr sögumaður, enda má segja að sagnahefðin sé ein elsta kennsluaðferðin sem til er. Á þessu námskeið er farið í gegnum margar aðferðir sem taka til skynfæranna og auka áhuga barna á sögum og hvernig við getum nýtt þær í stærðfræði- og móðurmálskennslu. Námskeiðið fer óhefðbundnar leiðir og búa þátttakendur til sinn eigin leir, með mismunandi lykt og áferð, og læra hvernig nota má leir sem öflugt kennslutæki. Aðferðirnar sem kenndar eru á námskeiðinu eru eitthvað sem allir, bæði nemendur og kennarar, ættu að prófa.

  • Markmið: Nota leirinn sem kennslutæki
  • Markhópur: Allir leik- og grunnskólakennarar
  • Lengd: 4 klst
  • >Áfangastaðir: Alicante

Leiðbeinandi

  • Sarah Jane Anthony Einu sinni var

    Sarah Jane Anthony er breskur leik- og grunnskólakennari. Hún hefur mikla reynslu af kennslu yngstu barnanna og hefur kennt í breskum skólum víðs vegar um Evrópu. King’s College á Alicante naut starfskrafta hennar um árabil þar sem hún var deildarstjóri. Fyrir fjórum árum lét hún svo drauminn rætast þegar hún stofnaði sinn eigin enskuskóla, Smartenglish, en hann er fyrir spænsk börn og er skólinn á Alicante. Þar kennir hún eingöngu í gegnum skapandi kennsluaðferðir. Námskeiðið Einu sinni var er haldið í skóla hennar og að sækja hann heim er upplifun út af fyrir sig.

Önnur námskeið