Deprecated: File class-phpmailer.php is deprecated since version 5.5.0! Use wp-includes/PHPMailer/PHPMailer.php instead. The PHPMailer class has been moved to wp-includes/PHPMailer subdirectory and now uses the PHPMailer\PHPMailer namespace. in /var/www/virtual/leikuradlaera.is/ferd/htdocs/wp-includes/functions.php on line 5574
Hópefli og tilfinningagreind - Endurmenntunarferðir

Hvaða áhrif hafa tilfinningar á ákvarðanir?

Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig við getum lært að átta okkur á tilfinningum og hvaða áhrif þær hafa á ákvarðanir. Leitast er við að svara spurningum á borð við: Hvað eru tilfinningar? Hvernig nýtast þær okkur? Hvaðan koma þær? Með því að leitast við að svara þessum spurningum lærum við að skilja samband á milli hugsana og tilfinninga og kynnumst aðferðum til að beina þeim í réttan farveg. Námskeiðið er byggt upp á skemmtilegan og lifandi hátt í gegnum leik, tónlist og líkamlega tjáningu og hentar bæði sem hópefli og fyrir einstaklinga.

  • Markmið: Lifandi námskeið þar sem leikurinn er notaður sem hjálpartæki við skilgreininguna á tilfinningunum
  • Markhópur: Allir leik- grunn- og framhaldsskólakennarar
  • Lengd: 4 klst
  • Áfangastaðir: Alicante

Leiðbeinandi

  • Laura López Martínez Hópefli og tilfinningagreind

    Laura er frá Alicante og er sérfræðingur í tilfinningagreind og jákvæðri sálfræði sem hefur starfað við kennslu í tilfinningagreind frá 2013. Hún hefur náð góðum árangri og vinnur með einstaklingum, fyrirtækjum og fjölmörgum menntastofnunum í Alicante sýslu. Laura hefur einnig starfað í Marokkó, Indlandi og með Leik að læra á Spáni. Hún starfaði í tvö ár með Sameinuðu þjóðunum í Mexíkó sem fulltrúi fyrir réttindum kvenna í Chiapas héraði og tók einnig þátt í starfi UNIFEM fyrir konur í Panama.

Önnur námskeið