Bretland · Menningar- og námsferð
London
Stórborg og margir möguleikar
- Mörg flug á dag frá Íslandi
- Vönduð hótel miðsvæðis
- West End leikhús & heimsminjar
- Skólaheimsóknir & STPM námskeið
Alhliða heimsborg sögu og samtíma
London, alhliða heimsborg sem fléttar saman sögu og nútíma. Hér má finna allt frá Tower of London til London Eye, spennandi borgarfjör, heimsþekkt listasöfn eins og Tate Modern og British Museum og leikhús við West End.
Fjölmargar verslanir, heimsþekkt menningarsvæði eins og Notting Hill og Covent Garden til fjölbreyttra veitingastaða. Þessi heillandi stórborg hefur eitthvað fyrir alla: söguskoðun, menningu, lista- og tónlistarlíf, afþreyingu í hæsta gæðaflokki og einstakar dagsferðir sem veita ómetanlegan innblástur fyrir skólastarf og starfsdaga.
UPPLIFÐU BORGINA AF ALVÖRU
Ævintýralegir afþreyingarmöguleikar
West End leikhús
Upplifðu heimsklassa söngleiki og leiksýningar í hjarta West End. Frá Lion King og Les Misérables til nýstárlegra nútíma leikverka, leikhúsin í London bjóða upp á óviðjafnanlega listræna upplifun sem allir kennarahópar hrífast af.
Tower of London & Söfn
Kynntu þér margra alda konungssögu í Tower of London, skoðaðu krúnudjásnin og heimsæktu heimsfræg söfn eins og British Museum, Tate Modern og Natural History Museum, þar sem aðgangur er gjaldfrjáls og fræðslugildið einstakt.
Thames sigling & Eye
Njóttu stórkostlegs 360 gráðu útsýnis yfir stórborgina úr London Eye og taktu afslappaða siglingu á Thames ánni milli Westminster og Tower Bridge. Frábær leið til að sjá öll helstu kennileiti borgarinnar frá nýju sjónarhorni.
Kynntu þér töfra London
Frá heimsþekktri sögu og konunglegum hefðum til skapandi hverfa, fjölbreyttrar verslunar og skólaþróunar.

Saga og heimsminjar
London geymir sögu sem spannar yfir tvö þúsund ár. Frá rómverskum múrum til glæsilegra miðaldakastala og breska þingsins í Westminster höll. Hvert götuhorn býr yfir einstökum frásögnum og heimsminjum sem gefa kennarahópum dýrmætan grunn í sögu, stjórnsýslu og menningararfi Evrópu.

Verslun og lífstíll
Fjölbreytni verslunar í London er óviðjafnanleg. Frá heimsþekktum stórverslunum eins og Harrods og Selfridges á Oxford Street til litríkra hönnunarmarkaða í Covent Garden, Camden og Portobello Road í Notting Hill. Hér geta allir fundið einstakan varning, breska hönnun og minjagripi.

Menning og heimsborgarbragur
London er ein fjölmenningalegasta borg heims þar sem yfir 300 tungumál eru töluð. Götulífið á South Bank við ána Thames, heillandi garðar eins og Hyde Park og Regents Park, og fjölbreytt kaffihúsamenning gera borgina að sérlega skemmtilegum og orkuríkum vettvangi fyrir samveru og endurnæringu.

Skólaheimsóknir & STPM 2026
Endurmenntunarferðir bjóða upp á sérsniðnar skólaheimsóknir í framsækna breska skóla þar sem lögð er áhersla á skapandi kennsluhætti, leik og vellíðan nemenda. London er jafnframt vettvangur hinnar stóru Smart Teachers Play More ráðstefnu 2026 þar sem kennarar alls staðar að úr heiminum koma saman.
Ánægðir viðskiptavinir
Umsagnir skólastjórnenda og kennara sem hafa ferðast með okkur í námsferðir.










