Þýskaland · Menningar- og námsferð
Berlín
Nýr valkostur
- Beint flug til Berlínar (BER)
- Vönduð hótel miðsvæðis
- Menning, tónlist & saga
- Skólaheimsóknir & STPM námskeið
Matur, menning og metnaðarfull dagskrá
Látum orðin duga því orð eru nefnd hér í þessari stuttkynningu borgar. Þróttur, líf, saga, list, vellíðan, og orkustöð þess vettvangs sem býr yfir ótrúlegri fjölbreytni menningar og ævintýra. Við erum í miðbæ samtímans og eldra tíma og áttum þar ómetanlega fundi allra kynslóða sem búa yfir óendanlegum sögum og menningu með leikjum og skólum.
Berlín er ein allramesta borg Evrópu og vettvangur kennarafunda sem vart jafnast getur við nokkuð annað. Frábær vettvangur til að virkja nýtt hlutverk meðal menningar og nýrra samtímalegra kynslóða og forsendur kennslu á 21. öldinni og möguleika til framtíðar.
UPPLIFÐU BORGINA AF ALVÖRU
Ævintýralegir afþreyingarmöguleikar
Tónleikar
Möguleikar á afþreyingu eru endalausir í Berlín enda borgin ein mesta menningarborg heims. Heimsfrægir tónlistarmenn halda tónleika reglulega í Berlín og er kjörið að athuga hvort einhver sem er í uppáhaldi hjá þér sé með tónleika á meðan á dvöl þinni stendur. Á viðburðavefnum Eventim eru auglýstir tónleikar sem gætu heillað þig.
Múrtúr
Við erum í samstarfi við Berlínur og eru þær með frábærar skoðunarferðir um Berlín. Berlínur bjóða upp á leiðsögn á íslensku um Berlín. Hægt er að panta skoðunarferðirhjá Berlínum í gegnum Endurmenntunarferðir. Yndisleg leið til að kynnast menningu og sögu Berlínar.
Lengd: 2 1/2 til 4 klst
Verð: Mismunandi
Sjónvarpsturninn
Sjónvarpsturninn í Berlín er líklega mest áberandi einkenni borgarinnar enda ein hæsta bygging Evrópu. Á hverjum degi fara fjölmargir upp í turninn og virða fyrir sér borgina úr besta mögulega útsýni. Þú getur jafnvel fengið þér sæti við glugga útsýnisturnsins og snætt mat á veitingastaðnum Sphere.
Verð frá €14
Kynntu þér töfra Berlín
Frá miðaldasögu kastalans og göngugötum til framúrskarandi skólaheimsókna og gistiaðstöðu.

Mannlíf og menning
Berlín er sérstaklega þekkt fyrir sín fjölmörgu söfn og í þeim er auðvelt að gleyma stað og stund og falla fyrir leyndardómum þeirra. Gyðingasafnið, Judesches Museum, er eitt vinsælasta safn Berlínar en þar má fræðast um sögu gyðinga í Þýskalandi. Neues safnið, Altes safnið og Pergamon safnið eru öll á mynjaskrá Unesco og á þeim ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á DDR safninu er hægt að sjá hvernig líf fólks var austan Berlínarmúrsins. Það er þó ekki nauðsynlegt að fara á safn til að sjá andstæðurnar sem voru þegar múrinn stóð, enda eru þær mjög miklar hvað byggingar borgarinnar varðar. Einn besti staðurinn til að upplifa þessar andstæður er Checkpoint Charlie.

Verslaðu í leiðinni
Í Berlín er hægt að finna fjölmargar verslanir sem Íslendingar hafa gaman að. Verslunarferð í H&M er algengur dagskrárliður í utanlandsferðum og haldið ykkur fast, það eru 28 slíkar verslanir í Berlín! Zara, Primark og C&A eru dæmi um verslanir sem eru í Berlín en þær eru í raun endalaust margar. Glæsilegar verslunarmiðstöðvar eru um alla borg og má þar nefna Alexa Mall og KaDeWe. Fyrir þau sem hafa gaman af verslunargötum er kjörið að fara á Kurfürstendamm, Friedrichstraße, Hackescher Höfe og Hackershermarkt, svo dæmi séu tekin, en á þar er verðlagt oft lægra en í verslunarmiðstöðvum.

Byggingarsaga borgar
Torg Berlínar eru fjölmörg og mismunandi eftir því. Pariser Platz er eitt það þekktasta en við það stendur hið heimsfræga Brandenburgarhlið. Potsdamer Platz er einnig mjög áhugavert og ekki síst vegna þess að ekki er langt síðan að það var lítið annað en sandur. Dómkirkjan í Berlín er ótrúleg bygging og hana er kjörið að skoða, stuttar raðir og margt að sjá. Kálfarnir hvílast ekki þegar Dómkirkjan er skoðuð því að til að njóta hennar sem allra best þarf að ganga fjölmargar tröppur.

Skólaheimsóknir
Leikur að læra er í frábæru samstarfi við þó nokkra skóla í Berlín og voru þeir valdir til að endurspegla þýskt menntakerfi á sem besta hátt og með það að leiðarljósi að kennarar og annað skólastarfsfólk fengi sem mest út úr heimsóknunum. Þýska skólakerfið er mjög áhugavert og er margt í því sem okkur finnst bæði framandi og spennandi. Hópar sem ferðast með okkur geta komið með óskir um hvað þeir vilja sjá og til að uppfylla ykkar þarfir finnum við rétta skólann handa ykkur. Við notum almenningssamgöngur í allar skólaheimsóknir enda er Berlín með besta lestarkerfi í heimi. Einnig er túlkur ef þess þarf í för svo enginn ætti að verða í vandræðum með að meðtaka kynningar skólanna og ættu því allir að geta notið heimsóknanna eins og best verður á kosið.
Ánægðir viðskiptavinir
Umsagnir skólastjórnenda og kennara sem hafa ferðast með okkur í námsferðir.





