Berlín
New York Evrópu
Matur, menning og metnaðarfull dagskrá
Leikur að læra býður upp á endurmenntunarferðir til þessarar sögufrægu borgar í Þýskalandi. Sagan lifnar við í hverju skrefi auk þess sem borgin iðar af mannlífi, veitingastöðum og verslun. Við erum í frábæru samstarfi við skóla í Berlín svo kennarar og annað starfsfólk skóla fá mikið út úr því að sækja borgina heim og kynnast þýsku skólakerfi.
Berlín er ein vinsælasta borg Evrópu og í endurmenntunarferð þangað getur þú einnig notið þeirrar miklu menningar og sögu sem borgin býr yfir og fengið eins mikið út úr ferðinni og möguleiki er á.uyuj
Ævintýralegir afþreyingarmöguleikar
UPPLIFÐU BORGINA AF ALVÖRU
Tónleikar
Möguleikar á afþreyingu eru endalausir í Berlín enda borgin ein mesta menningarborg heims. Heimsfrægir tónlistarmenn halda tónleika reglulega í Berlín og er kjörið að athuga hvort einhver sem er í uppáhaldi hjá þér sé með tónleika á meðan á dvöl þinni stendur. Á viðburðavefnum Eventim eru auglýstir tónleikar sem gætu heillað þig.
Múrtúr
Við erum í samstarfi við Berlínur og eru þær með frábærar skoðunarferðir um Berlín. Berlínur bjóða upp á leiðsögn á íslensku um Berlín. Hægt er að panta skoðunarferðirhjá Berlínum í gegnum Endurmenntunarferðir. Yndisleg leið til að kynnast menningu og sögu Berlínar.
Lengd: 2 1/2 til 4 klst
Verð: Mismunandi
Sjónvarpsturninn
Sjónvarpsturninn í Berlín er líklega mest áberandi einkenni borgarinnar enda ein hæsta bygging Evrópu. Á hverjum degi fara fjölmargir upp í turninn og virða fyrir sér borgina úr besta mögulega útsýni. Þú getur jafnvel fengið þér sæti við glugga útsýnisturnsins og snætt mat á veitingastaðnum Sphere.
Verð frá €14
Mannlíf og menning
Verslaðu í leiðinni
Fyrir þau sem hafa gaman af verslunargötum er kjörið að fara á Kurfürstendamm, Friedrichstraße, Hackescher Höfe og Hackershermarkt, svo dæmi séu tekin, en á þar er verðlagt oft lægra en í verslunarmiðstöðvum.
Byggingarsaga borgar
Dómkirkjan í Berlín er ótrúleg bygging og hana er kjörið að skoða, stuttar raðir og margt að sjá. Kálfarnir hvílast ekki þegar Dómkirkjan er skoðuð því að til að njóta hennar sem allra best þarf að ganga fjölmargar tröppur.
Skólaheimsóknir
Leikur að læra er í frábæru samstarfi við þó nokkra skóla í Berlín og voru þeir valdir til að endurspegla þýskt menntakerfi á sem besta hátt og með það að leiðarljósi að kennarar og annað skólastarfsfólk fengi sem mest út úr heimsóknunum. Þýska skólakerfið er mjög áhugavert og er margt í því sem okkur finnst bæði framandi og spennandi. Hópar sem ferðast með okkur geta komið með óskir um hvað þeir vilja sjá og til að uppfylla ykkar þarfir finnum við rétta skólann handa ykkur. Við notum almenningssamgöngur í allar skólaheimsóknir enda er Berlín með besta lestarkerfi í heimi. Einnig er túlkur ef þess þarf í för svo enginn ætti að verða í vandræðum með að meðtaka kynningar skólanna og ættu því allir að geta notið heimsóknanna eins og best verður á kosið.
Ánægðir viðskiptavinir
"Njarðvíkurskóli hefur farið með Endurmenntunarferðum til Alicante og Berlínar. Í báðum ferðunum hafa öll samskipti við Nonna og hans fólk verið til fyrirmyndar, hvort sem það hefur verið fyrir ferðir, á stöðunum eða eftir heimkomu. Þjónustan frábær og Nonni fljótur að bregðast við ýmsum atriðum sem tengjast því að ferðast með stóran starfsmannahóp."
Njarðvíkurskóli"Við höfum farið með Endurmenntunarferðum tvisvar erlendis í námsferðir. Þjónustan hefur verið til fyrirmyndar. Snögg að svara og allar okkar óskar hafa verið uppfylltar. Öll úrvinnsla td með styrkumsóknir og annað hafa verið frábært"
Leikskólastjóri Leikskóli á Reykjanesbæ
"Frábærlega vel skipulögð ferð í alla staði. Það eina sem ég þurfti að hugsa um var að koma mínu fólki í rútuna á morgnana. Snilld að það sé búið að skipuleggja allt fyrir mann."
Leikskólastjóri Leikskóli í Mosfellsbæ