Umsjón: Sigurður Haukur Sigurðsson
Lengd: 3 klst
Á námskeiðinu verða ýmis hagnýt ráð kynnt sem gott er að hafa í huga í fjarkennslu. Rafrænu skólastofurnar Google Classroom og Seesaw kynntar sem og ýmsir samvinnumöguleikar í Google umhverfinu sem skólar geta nýtt sér endurgjaldslaust og margt fleira.
Nánari lýsing væntanleg.

Siðfræðin er sú grein sem leitast við að greina og skilja siðferðið og tekst á við spurningar á borð við: Hvað er rétt og rangt? Hvað er gott og illt? Hvað er eftirsóknarvert? Hvernig lífi ætti ég að lifa? Með siðfræðinni er einnig reynt að finna leiðar til að bæta siðferðið. Hagnýting siðfræðinnar er meginviðfansefni námskeiðsins. Velja má eftirfarandi leiðir a eða b eða blanda þeim saman í einu námskeiði: a) Farið verður stuttlega í grunnþætti siðfræðinnar sem fræðigreinar en megináherslan verður á að greina siðferðileg álitamál í hversdaglegu lífi með áherslu á fagmennsku í uppeldisstörfum og þjálfa færni í að bregðast við þeim. Fjölbreytt viðfangsefni siðfræðinnar verða kynnt og ýmis siðferðileg álitamál skoðuð og rædd. b) Hvernig kennir maður grunnskólanemendum siðfræði? Kynntar verða aðferðir og viðfangsefni sem gagnast þegar siðfræði er kennd, hvort sem hún er kennd sem sér námsgrein eða sem hluti annarra greina.

Nánari lýsing væntanleg.

Þátttakendur eru virkjaðir ásamt því að fá verkfæri sem þeir geta nýtt sér í sinni kennslu.
Ef þú hefur áhuga á að fara í endurmenntunarferð upp á eigin spýtur eða vilt leita eftir tilboði fyrir hópinn þinn geturðu haft samband við okkur og við svörum um hæl! Hlökkum til að heyra frá þér og vonandi verðum við saman sötrandi svaladrykki í sandinum næsta sumar!